Ólafur Stefánsson ræðir vegferðina að því hvernig hann varð besti handboltamaður heims eftir að hafa ekki verið valinn í landsliðsúrtak og komast ekki inn í læknisfræðinám. Eftir ferilinn fór Óli í 7 ára ferðalag, kynntist sjálfum sér, upplifði það sem hann hafði lesið um og er núna kominn aftur heim.
Starfsmönnum Controlant fjölgaði úr 50 í 350 og tekjurnar úr 400 milljónum í 8 milljararða á aðeins 2 árum. Controlant varð landsþekkt á örskömmum tíma þegar samstarf þess við Pfizer og vöktun bóluefna gegn Covid-19 var handsalað. Það er freistandi að kalla þetta 'overnight success' en ef horft er til síðustu 15 ára er ljóst að árangurinn náðist ekki á einni nóttu. Rafmagnsverkfræðingarnir Gísli og Elli hönnuðu þráðlausan skynjara til að mæla þrýstinginn í jeppadekkjum en þegar svínaflensan skaut upp kollinum kom í ljós að skynjararnir gætu gegnt mikilvægara hlutverki í samfélaginu. Þar hófst mikill vöxtur og vegferð í átt að samningum við Pfizer með skrautlegum verkefnum í millitíðinni þar sem lausnir Controlant vöktuðu gítar Brian May, þörunga, matvörur fyrir Chipotle og fleiri.
Mari er ultrahlaupari sem gerði bakgarðinn frægan þegar hún hljóp 288km fyrr í vor. Hér fer hún yfir uppeldisaðstæður í Eistlandi, fíkn foreldra sinna, lífið í sveitinni án uppeldis og menntunar, að vera tekin frá foreldrum, SOS barnaþorpin, flutninga sína til Íslands, uppgjör við æskuna, all-in genið og djammið, hvernig hún safnaði/sparaði fyrir íbúð, ultrahlaupin og innkoman í hlaupasenuna hérlendis.
Óskabarn Napólí fer hér yfir stormasaman feril í stúdentapólitík og stjörnulögfræði: lögreglufylgd af fótboltaleik til að halda ræðu á Bessastöðum, ritgerðarmálið sem þurrkaði atvinnutækifærin út af borðinu og neyddu Villa til að flytja á Skagaströnd, Landsréttarmálið og stærsta málsflutningur ferilsins, dómstól götunnar, tattúin, Napólí, Ítalíu og fjölskyldulífið.
"Við eigum bara daginn í dag. Það er það eina sem við höfum og hann þarf bara að vera góður. Hver einasti dagur þarf að vera góður." Reynir seldi fyrirtæki og er í dag fjárfestir sem byggir hús, mokar skít og gróðursetur tré. Hann heldur fjarlægð frá peningum og fær aðra til að sjá um þá fyrir sig. Við ræðum hvernig hann eignaðist margar milljónir sem ungur maður og tapaði þeim öllum, útrás CreditInfo og af hverju Reynir lærði þróunarfræði, mannfræði, grísku og frönsku áður en hann hélt út með fyrirtækið, að fara í stuttbuxur en ekki jakkaföt, sögur frá Kabúl og Teheran, erfiðasta tímabil lífs hans og skömmina sem fylgdi kvíðalyfjunum.
“Eitt af mínum stærstu markmiðum var að öðlast innri ró. Þú lifir ekki lífinu fyrir aðra, þú lifir lífinu fyrir sjálfan þig. Ég átti pabba sem var alkóhólisti og það er ákveðið átak að brjótast út úr því og taka stjórn á lífinu. Þú þarft stundum að taka erfiðar ákvarðanir og erfiða slagi sem eru sársaukafullir og draga dilk á eftir sér allt þitt líf en þú verður að setja sjálfan þig í fyrsta sæti, það er enginn annar sem gerir það fyrir þig.” Andri Þór hefur stýrt Ölgerðinni síðustu 20 árin en þegar hann tók við forstjórastarfinu var markaðshlutdeild Ölgerðarinnar 30% á móti 70% samkeppnisaðila og 15% hjá Pepsi á móti 85% Coke. Við ræðum stór og áþreifanleg markmið sem Andri setur fyrirtækinu og sjálfum sér, hvað þarf til að framfylgja sterkum gildum, að leyfa sér að hugsa stórt og setja sér risa markmið, erfiðleika í fjölskyldulífinu, hvernig NOCCO kom eins og stormsveipur inn...
Ágúst Einþórsson setti á laggirnar Brauð & Co. árið 2016 og kröfur Íslendinga til súrdeigsbrauðs og kanilsnúða breyttust til frambúðar. Margt var í gangi bakvið tjöld vinsælasta bakarís landsins enda Gústi lunkinn í að lenda upp á kant við fólk að eigin sögn. Forsaga og eftirmálar bakarísins eru hér gerðar upp af einum skrautlegasta karakter sem gengur um götur bæjarins, sem rekur nú bakaríið og veitingastaðinn Baka Baka. Í þættinum ræðir Gústi flutningana til Danmerkur til að greiða djammskuldir með gjaldeyrismismun, að komast undir kröfum annarra í Kaupmannahöfn, samningar við stofnun Brauð & Co. og eftirmálarnir við söluna, edrúvandamálin sín, fíkniefnakaup af meðlimum Hells Angels, hvernig 8 ára edrútímabil leið undir lok, í hvað peningurinn fór við sölu hlutarins í Brauð & Co. og fyrst og fremst heiðarleg frásögn af mannlegri vegferð gegnum töp og sigra lífsins.
"Covid niðursveiflan var miklu harðari en ég bjóst við og ég held að niðursveiflan núna sé miklu alvarlegri en nokkurn tímann Covid." Þórður Pálsson er forstöðumaður fjárfestinga hjá Sjóvá og fyrrverandi yfirmaður greiningardeildar Kaupþings. Í þættinum er farið yfir breitt svið efnahagsástandsins í dag: Áhrif Covid á hlutabréfaverð Lækkun stýrivaxta og áhrif á markaði Verðbólguspá Þórðar Almenningur vs. fagfjárfestar á hlutabréfamarkaði Gírun í kerfinu Órói og kostir þess að halda á lausu fé Peningaprentun og Seðlabankinn Fasteignamarkaðurinn - getur íbúðarverð hækkað endalaust og erum við í bólu? Rafmyntir
Aníta var einungis 24 ára gömul þegar hún landaði aðalhlutverki í Hollywood stórmyndinni Journey to the Center of the Earth. Í dag er hún flutt heim og hefur aðra sýn á glansmynd Hollywood-framleiðslunnar. Aníta ræðir agann sem henni tókst að beina í átt leiklistarinnar til að láta drauma sína rætast en á yngri árum kom þessi sami agi henni í lífshættu þegar hún var vistuð á BUGL vegna anorexíu, mikilvægi þess að flytja út, hömlurnar sem hún vissi ekki að hún væri með á sjálfri sér, Werner Herzog, aðdáun samnemenda á pabba sínum og nýjustu myndina hennar: Skjálfti.
Þriggja tíma uppistand frá listamanninum Erpi Eyvindarsyni. Kennarasonurinn alinn upp á finnska mátann deilir skoðunum á Könum vs. Finnum, siðareglum mismunandi þjóða (djúpsteikt sushi, Víetnamskar stríðsgildrur og heiðnir siðir), upplestur úr Mein Kampf á afmælishátíð Laxenss (13 ára gamall), einn af þremur Íslendingum dæmdum fyrir að smána erlenda þjóð (Mólotov kokteill + áfengi + bandaríska sendiráðið), Sacha Baron Cohen vs. Johnny Naz, að hætta í skemmtanabransanum og flytja til Svíþjóðar, allt kjaftæðið sem Friðrik Dór hefur þurft að umbera, nauðsynleg edrútímabil og að fá meira út úr sundferðum heldur en Edduverðlaunum.