Hans Óli skaut fyrst

Hans Óli skaut fyrst

  • Overview
  • Episodes
Overview
himalaya
9 Episodes
Í tilefni þess að níunda og síðasta kvikmyndin í Star Wars sögu Skywalker-fjölskyldunnar verður frumsýnd í desember sest stjörnustríðs nördinn Geir Finnsson niður með öðrum aðdáendum myndanna og kryfur þær í þessari níu þátta hlaðvarpsseríu. Hvað voru framleiðendur að pæla með Jar Jar Binks? Hvernig fóru þeir að því að byggja nýja Helstirnið svona hratt? Og hvor skaut fyrst, Han Solo eða Greedo?
see more
Episodes
9 Episodes

Þá er komið að lokaþættinum í Hans Óli Skaut Fyrst, þáttunum þar sem Geir Finnsson hefur gert upp Stjörnustríðsmyndirnar með góðum gestum og talið upp í níundu og síðustu myndina í Skywalker sögunni svokölluðu. Eftir að hafa rætt allar myndirnar í þaula síðustu mánuði hafa Geir og gestir vikunnar, þau Stefán Pettersson, Bríet Blær Jóhannsdóttir og Ragnhildur Kristjana Ásbjörnsdóttir Thorlacius nú séð nýjustu kvikmyndina Star Wars Episode IX: The Rise of Skywalker og ræða hana í þessum þætti.

Það er komið að áttundu og næst síðustu kvikmyndinni í Stjörnustríðsbálknum, The Last Jedi. Myndin kom út árið 2017 og vakti mismikla lukku eins og þær gera jú margar. Að þessu sinni fær Geir Finnsson þau Helgu Margréti Höskuldsdóttur, dagskrárgerðarkonu, og Stefán Snæ Stefánsson, laganema, til sín en þau segjast hvorugt vera sérstakir sérfræðingar um Star Wars, við látum hlustendur dæma um það.

Sjöundu kvikmyndinni í stjörnstríðs bálknum eru gerð skil í þessum sjöunda þætti hlaðvarpsins. Kvikmyndin kom út árið 2015 og er sú fyrsta í upptaktinum að endalokunum. Gestir þáttarins eru Sonja Sigríður Jónsdóttir og Tómas Geir Howser.

Í þessum sjötta þætti stjörnustríðs-hlaðvarpsins Hans Óli skaut fyrst er að sjálfsögðu fjallað um sjötta kafla kvikmyndabálksins, Return of the Jedi. Kvikmyndin kom út árið 1983 og er síðasta myndin í upphaflega þríleiknum. Kvikmyndin vék aftur frá myrkri stefnunni sem tekin var í Empire strikes back en höfundur og heilinn að baki kvikmyndunum, George Lucas, uppgvötaði af alvöru sóknarfærin í leikfangasölu við útgáfu hennar. Umsjónarmaður þáttarins er Geir Finnsson en gestir eru þau Oddur Ævar Gunnarsson, blaðamaður hjá Fréttablaðinu og Sonja Sigríður Jónsdóttir, athafnakona.

Næst vindum við okkur í fimmta kafla, The Empire Strikes Back. Um er að ræða fyrsta Stjörnustríðsframhaldið og fór hún í ansi djarfar áttir sem varð til þess að myndin var mun myrkari en forveri sinn og hlaut því ekki lof gagnrýnenda fyrst um sinn. En með tíð og tíma var ljóst að Empire Strikes Back væri, eftir á að hyggja, ansi góð. Í raun allra besta Stjörnustríðsmyndin ef út í þá sálma er farið. Til þess að rýna í þessa merkilegu mynd fékk Geir í þáttinn annars vegar Daníel Rósinkrans, penna hjá Nördi Norðursins og hins vegar Silju Björk Björnsdóttur, kvikmyndafræðing og rithöfund.

Þá er forleiknum lokið og hefst Geir nú handa við að fara yfir fjórða kaflann í Star Wars, A New Hope, sem er jafnframt allra fyrsta myndin. Þegar hún kom út árið 1977 hlaut hún alveg framúrskarandi viðtökur, sló öll sölumet og var tilnefnd til fjölmargra Óskarsverðlauna. Það er hér sem Logi Geimgengil, Hans Óla og Lilju bregður fyrir í fyrsta sinn þegar þau bjarga Vetrarbrautinni frá hinu illa Veldi. Því er af nógu að taka og rýnir Geir í þessa klassísku mynd með Berglindi Hrefnu Sigurþórsdóttur, tölvunarfræðinema og Starra Reynissyni, bóksala og stjórnmálafræðinema.

Í þessum þriðja þætti fer Geir yfir þriðja og síðasta kaflann í Star Wars forleiknum (sem sagt kvikmyndirnar sem komu á eftir en samt á undan upprunalegu myndunum þremur), Revenge of the Sith. Það sem sker þessa frá hinum tveimur er að hún fékk mun betri viðtökur og þykir vera á meðal betri Stjörnustríðsmynda sem komið hafa út. Engu að síður er nóg að finna sem kemur í veg fyrir að myndin verði afburðar góð, misgóð samtöl og skrítnar ákvarðanir í handritaskrifum svo fáein dæmi séu nefnd. Þetta og mun fleira rýna gestir vikunnar í með Geir, en það eru þær Ragnhildur K. Ásbjörnsdóttir Thorlacius, lögfræðingur og Bríet Blær Jóhannsdóttir, starfsmaður hjá Søstrene Grene.

Í þessum öðrum þætti fer Geir yfir annan kafla Star Wars sögunnar, Attack of the Clones. Þessi mynd var byltingarkennd fyrir þær tækninýjungar sem hún notfærði sér, en þess ber að geta að hún er ein sú fyrsta sem er alfarið tekin upp stafrænt. Því miður voru viðtökurnar slæmar, rétt eins og með fyrri myndina, þrátt fyrir að viðvera Jar Jar Binks sé töluvert minni nú. Jafnframt er það skoðun manna að rómantíkin í þessari sé á meðal þeirra alverstu í kvikmyndasögunni. Gestir þáttarins, þær Ingunn Lára Kristjánsdóttir, blaðamaður og Donna Cruz, kvikmyndaleikkona rýndu í þessa margslungnu mynd með Geir.

Í þessum fyrsta þætti er farið yfir fyrsta kafla Star Wars sögunnar, The Phantom Menace. Sýningarmiðar og leikföng seldust eins og sjóðandi heitar lummur eftir útkomu myndarinnar en hún er engu að síðu umdeild. Gestir þáttarins eru Stefán Petterson, sem fer fyrir hinni íslensku Stjörnustríðsaðdáendagrúppu á Facebook, og Gabríela Jóna Ólafsdóttir, tölvunarfræðinemi og töluverður Stjörnustríðssérfræðingur.

Got questions? We've got the answers
  • What is Himalaya?
    Himalaya is an audio platform that delivers the inspiration and knowledge you need to achieve your most ambitious goals. In just 10 minutes a day, you’ll learn the secrets of happiness, success, and more from some of the world's highest achievers and thought leaders. From our powerful life stories to high-impact courses, you'll find what you need to get inspired and get ahead.
  • Is there a free version that I can try out?
    By default, you’ll have 7 days after signing up before you are charged. You may also be given some promo codes with a longer free trial period. During the free trial period (7 days or longer), you will have full access to all paid content in Himalaya Learning.
  • How can I redeem a promo code?
    You can edit your promo code on the checkout page. Go to https://www.himalaya.com/premium/us and select "Start 7-day free trial". You need to register your account or log in to your account before you go to the checkout page. Click “Have a promo code to apply?” and replace the default promo code with the code you have.
  • Why do you need my credit card?
    In order to verify your identity, we require credit card validation upfront. We'll never charge your card until the free trial period is over. And unless you'd like to cancel, no further action will be needed on your part to begin recurring monthly payments as an official Himalaya listener! If you ever have any questions about payments or charges, please don’t hesitate to contact us at support@himalaya.com. We’ll help you solve your problem as fast as we can.
  • How do I cancel my free trial?
    1. On desktop: Go to https://www.himalaya.com; click your username on the upper right corner, and select “Membership” from the drop-down list; Click your active membership, then click on "Next Billing Date >" and "Cancel Subscription" 2. On Android mobile: In the app, go to "account" and choose the “member details” page, then choose to unsubscribe; 3. On iOS mobile: If you initially subscribe on the web, you cannot cancel it on the iOS mobile app. You need to follow the instructions for cancellation on desktop; if you subscribe via the iOS mobile, you can also turn off the automatic renewal via the iTunes/Apple ID settings.
  • How do I cancel my subscription?
    Subscribed from the Website?
    You can click here to unsubscribe. If you cancel the subscription during the trial period, it will not automatically renew; if you cancel the subscription after successful renewal, the next deduction cycle will not automatically renew.
    Subscribed from IOS or Android apps?
    You can cancel the subscription through Apple or Google Play settings. If you cancel the subscription 48 hours before the expiration of the trial period, the subscription will not be automatically renewed; if you cancel the subscription after successful renewal, the next deduction cycle will not be automatically renewed. You can find detailed information on how to unsubscribe from the link below:Cancel a subscription from Apple  Cancel a subscription from Google Play

With Himalaya APP

Listen On-The-Go
Audio courses turn your chore time into productive learning moments. No need to sit down and get locked in front of a screen
Short & Sweet
Each course is composed of lessons about 5 mins long and designed to be bite-sized to make the learning schedule flexible for you
Accomplish More
Get ahead by learning first-hand insights and knowledge from some of the world's sharpest minds and industry leaders.
app store
google play