Hans Óli skaut fyrstKafli IX - The Rise of Skywalker
--2019 DEC 21
Details
Þá er komið að lokaþættinum í Hans Óli Skaut Fyrst, þáttunum þar sem Geir Finnsson hefur gert upp Stjörnustríðsmyndirnar með góðum gestum og talið upp í níundu og síðustu myndina í Skywalker sögunni svokölluðu. Eftir að hafa rætt allar myndirnar í þaula síðustu mánuði hafa Geir og gestir vikunnar, þau Stefán Pettersson, Bríet Blær Jóhannsdóttir og Ragnhildur Kristjana Ásbjörnsdóttir Thorlacius nú séð nýjustu kvikmyndina Star Wars Episode IX: The Rise of Skywalker og ræða hana í þessum þætti.